Rakel Sara 3. ára

Rakel Sara 3. ára

Í dag héldum við upp á 3. ára afmlælið hennar Rakelar Söru en hún á afmlæi á sunnudaginn 16. janúar.  Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Rakel Sara öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Rakel Söru og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.