Rakel Bára 2 ára

Rakel Bára 2 ára

Rakel Bára varð 2 ára laugardaginn 21. ágúst en við á Hólakoti héldum upp á daginn sl. föstudag. Í tilefni dagsins bjó Rakel Bára til kórónu og flaggaði ásamt Breka Hrafni en hann varð 3 ára sama dag. Rakel Bára blés á afmæliskertin sín, við sungum henni til heiðurs og svo bauð hún börnunum upp á ávexti.

Við á Hólakoti óskum þér Rakel Bára og fjölskyldu þinni innilega til hamingju með daginn :-)