Patrycja 2 ára

Patrycja 2 ára

Í gær 17. desember  varð Patrycja 2 ára og héldum við uppá afmælið hennar í gær hér í Krílakoti.

Patrycja málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin tvö.

Eftir sönginn bauð Patrycja öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Patrycju og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti