Opin vika á Krílakoti - allir velkomnir

Opin vika  á Krílakoti - allir velkomnir

Þessa vikuna stendur yfir opin vika  á Krílakoti. Við bjóðum öllum þeim sem áhuga hafa að koma og eiga stund með okkur í leik og starfi og er fólki velkomið að koma eins oft og það vill á opnunartíma leikskólans sem er frá kl. 07:30 til 16:15. Í lok vikunnar bíður svo Foreldrafélag Krílakots upp á kaffi milli kl. 14:00 og 16:00. Hér má sjá nánari dagskrá.

Vonumst til að sjá sem flesta, unga sem aldna!