Opin vika á Krílakoti

Opin vika á Krílakoti

Vikuna 4. til 8. maí nk. mun Krílakot vera með opna viku. Foreldrum nemenda, fjölskyldum þeirra og vinum, sem og öðrum áhugasömum er boðið að kíkja í heimsókn. Hægt verður að heimsækja skólann á opnunartíma, eða frá kl. 7:30 til 16:15 og taka þátt í leik og starfi með börnum og kennurum. Fólki er velkomið að kíkja til okkar oftar en einu sinni.

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Elvar Frey, Bessa, Daða Jón og Þorstein í vinnu með tölustafi í hópastarfi.

Til að gefa fólki smá hugmynd um hvað verður í gangi þessa daga opnið hér