Ný kerra í Krílakoti

Ný kerra í Krílakoti

Krílakot fjárfesti í nýrri kerru nú í vikunni. Kerran er smíðuð af  Blikkrás og er fyrir fimm börn. Mjög rúmt er um börnin og eru belti fyrir þau öll.

Kerran gefur okkur aukin tækifæri til vettvangsferða með yngstu börnin, sem varla eru orðin göngufær, svo þau geti notið útiveru í meira magni.

Þá er bara að krossa fingur og vona að færðin verði þolanleg svo kennarar í Krílakoti geti stormaðu um byggðina með börnin í vettvangsferðir og jafnframt notið útiveru og hreyfingar í heilsueflandi Dalvíkurbyggð.

Bestu kveðjur og góða helgi.