Natalia 4. ára

Natalia 4. ára

Þann 2. janúar átti hún Natalía 4. ára afmæli  og að því tilefni héldum við upp á daginn hennar í dag.

Natalia málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Natalia öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Nataliu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.