Natalía 3 ára

Natalía 3 ára

Þann 2. janúar varð hún Natalía 3. ára. Við héldum upp á daginn hennar í dag 5. janúar. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Natalía öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni, einnig var hún þjónn dagsins. Við óskum Natalíu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.