Nadia 2 ára

Nadia 2 ára

Þann 24 október héldum við upp á 2 ára afmælið hennar Nadiu. Nadia málaði kórónuna sína í fallegum litum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni. Við óskum Nadiu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.