Milena 2 ára

Milena 2 ára

Í dag héldum við upp á 2 ára afmælið hennar Milenu. Milena bjó til fallega kórónu og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn. Eftir sönginn fengu svo allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni. 

Við óskum Milenu og fjölskyldur hennar innilega til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti