Mikael Máni 2. ára

Mikael Máni 2. ára

Á föstudaginn síðasta þann 26. nóvember héldum við upp á 2. ára afmælið hans Mikaels Mána en hann átti afmæli laugardaginn 27. nóvember. Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við afmælissönginn og afmælisbarnið blés á kertin tvö. Eftir sönginn bauð Mikael Máni öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Mikael Mána og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.