McGrath 2 ára

McGrath 2 ára

Í dag héldum við uppá tveggja ára afmæli McGrath en hann á afmæli á morgun.  Flaggað var í tilefni dagsins og afmælissöngvarnir okkar sungnir fyrir McGrath, "Hann á afmæli í dag", "Hann hefur stækkað í nótt" og " Þetta er afmæliskveðja". McGrath bauð svo börnunum upp á banana og vínber úr afmælisávaxtakörfunni.  Óskum við  McGrath og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum á Skýjaborg.