Maya Alexandra 3 ára

Maya Alexandra 3 ára

Í dag 13 júlí héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Mayu Alexöndru hér á Krílakoti.

Maya Alexandra málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Maya Alexandra öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Mayu Alexöndru og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.