Matthías Helgi 3 ára

Matthías Helgi 3 ára

Í dag þann 24. október varð Matthías Helgi 3 ára og héldum við upp á afmælið hans hér í Krílakoti.

Matthías Helgi málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Matthías Helgi öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Matthíasi Helga og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.