Matthías Helgi 2. ára

Matthías Helgi 2. ára

Í dag 24. október á Matthías Helgi 2. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hans.

Matthías Helgi málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.

Eftir sönginn bauð Matthías Helgi öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.

Við óskum Matthíasi Helga og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.