Magnea Kristín 3 ára

Magnea Kristín 3 ára

þann 26. janúar  verður  Magnea Kristín 3 ára og héldum við uppá afmælið hennar í dag hér í Krílakoti.

Magnea Kristín málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Magnea Kristín öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Magneu Kristínu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.