Lovísa Lilja 5 ára

Lovísa Lilja 5 ára

Þann 28. október sl. varð Lovísa Lilja 5 ára. Hún ákvað að taka daginn með stæl og nældi sér í hlaupabólu á afmælisdaginn. Við héldum því upp á daginn hennar í leikskólanum í dag. Hún bauð börnunum upp á ávexti eftir íþróttatímann í morgun
og þegar heim kom sungu börnin afmælissönginn fyrir hana, hún blés á kertin 5 og flaggaði íslenska fánanum. Hún var líka umsjónarmaður dagsins og stóð sig með prýði við það. Við óskum Lovísu Lilju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju
með daginn.