Leikskólinn lokaður kl 12:00 þann 19. júní 2015

Leikskólinn lokaður kl 12:00 þann 19. júní 2015

Komið sæl

Þann 19. júní 2015 verða leikskólarnir lokaðir klukkan 12:00.


Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. maí sl. að loka öllum starfsstöðvum sínum frá og með kl. 12:00 á kvenfrelsisdaginn 19. júní n.k. og veita starfsfólki frí.


Með ákvörðuninni sýnir sveitarstjórn 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna virðingu og hvetur starfsmenn til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þann dag sem áformuð eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna.