Leikfimisdagur

Leikfimisdagur

Í dag er á skóladagatali leikfimisdagur, sem þýðir að farið er með börn fædd 2005 og 2006 í íþróttahúsið og farið í leiki og æfingar með börnum frá Kátakoti. Vegna veðurs munum við ekki fara með yngri börnin (fædd 2006), en enn sem komið er munum við sjá til með þau eldri, en þau eiga að mæta kl. 10:00 í íþróttahúsið.