Kastljós í kvöld

Í morgun fengum við heimsókn frá Kastljósi Ríkissjónavarpsins. Það voru Margrét Blöndal og myndatökumaður sem komu hingað ásamt Júlla Júll. Tilefnið var það að börnin á Krílakoti hafa verið að teikna myndir af 'Júróvisjón-förum' til þess að hvetja okkar fólk áfram. Börnunum þótti mjög gaman að fá þau í heimsókn og voru sérstaklega hrifin af myndatökuvélinni! Margrét tók svo viðtal við hann Guðna Berg sem er á Hólakoti og vonumst við til að sjá viðtalið í Kastljósi nú í kvöld!

                  Kv. Dagbjört