Karita Kristín 4 ára

Karita Kristín 4 ára

 Þann 21. mars varð hún Karita Kristín 4. ára  og héldum við upp á afmælið hennar þann 27. mars.

Karita Kristín málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Karita Kristín öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Karitu Kristínu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.