Kári 1 árs

Kári 1 árs

Í dag héldum við upp á 1 árs afmæli Kára Eyfjörð en hann átti afmæli í gær, þriðjudag,

þann 3. desember. Kári málaði sér kórónu og við flögguðum íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Eftir sönginn bauð hann öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Kára og fjölskyldu hans til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti