Jón Ármann 3 ára

Jón Ármann 3 ára

Í dag héldum við upp á 3 ára afmælið hans Jóns Ármanns, en hann á afmæli í lokunni þann 28. júlí.

Jón Ármann málaði á kórónuna sína.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.

Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Jóni Ármanni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti