Jólaföndur

Jólaföndur

Nú er leikskólinn okkar að komast í jólabúninginn. Í þessari viku hafa verið bakaðar smákökur og verið er að hengja upp jólaseríur í gluggana. Í næstu viku verður svo jólaföndur og er foreldrum boðið að koma og taka þátt með börnum sínum.

Á þriðjudaginn eru það börnin á Hólakoti, miðvikudaginn börnin á Skakkalandi og á fimmtudaginn er röðin komin að börnunum á Skýjaborg.

Foreldrum er velkomið að koma á bilinu 8:30-11:00, föndra með okkur og eiga góða stund með börnum sínum.