Jakub 4. ára

Jakub 4. ára

Í dag 5. janúar á Jakub 4. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hans.

Jakub málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Jakub öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Jakub og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.