Jakub 3 ára

Jakub 3 ára

Jakub varð 3 ára í dag 5. janúar. Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.  Eftir sönginn bauð Jakub öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni, einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum Jakub og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.