Írena Rut 6 ára

Írena Rut 6 ára

 Í dag 7. júlí á Írena Rut 6 ára afmæli og af því tilefni héldum við veislu hér í Kátakoti.

Írena Rut bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6 og

bauð svo öllum í Kátakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Að veislu lokinni fór hún út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.

Við óskum Írenu Rut og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.