Hólakot heimsækir Kátakot

Hólakot heimsækir Kátakot

Þau börn á Hólakoti sem flytjast á Kátakot eftir sumarfrí fóru í heimsókn á Kátakot í tveimur hópum. Fyrri hópurinn fór á þriðjudag en sá seinni fór á miðvikudaginn. Öllum þótti mjög gaman og spennandi að fá að leika sér inni á deildinni með stóru krökkunum og fara svo aðeins út í garðinn að leika. Nokkrir hittu líka foreldra sína eða eldri systkini. Við förum svo aftur í heimsókn til þeirra í júní, auk þess að fara örugglega nokkrum sinnum í útiverunni í sumar. Myndir segja meira en mörg orð svo við látum nokkrar fylgja, en fleiri myndir eru fyrir foreldra á Hólakotssíðunni.