Hildur Inga 3 ára

Hildur Inga 3 ára

Þann 10. nóvember verður Hildur Inga 3. ára og héldum við uppá afmælið hennar í dag hér í Krílakoti.

Hildur Inga málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Hildur Inga öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Hildi Ingu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.