Heiðrún Elísa 2.ára

Heiðrún Elísa 2.ára

 

Heiðrún Elísa varð 2. ára í dag 24. nóvember. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin tvö. Eftir sönginn bauð Heiðrún Elísa öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Heiðrúnu Elísu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.