Hákon Þór 2. ára

Hákon Þór 2. ára

Í dag hédum við upp á 2. ára afmælið hans Hákonar Þórs en hann átti afmæli 11. apríl.

Hákon Þór málaði sér kórónu og flögguðum við fyrir hann í tilefni dagsins.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Eftir sönginn bauð Hákon Þór öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.

Við óskum Hákoni Þór og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skýjaborg.