Í dag héldum við upp á 5 ára afmælið hennar Guðnýjar Jónu. Í tilefni dagsins bjó hún til kórónu sem hún bar, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni, var umsjónarmaður, flaggaði íslenska fánanum og svo var afmælissöngurinn sunginn fyrir hana. Við óskum Guðnýju Jónu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.