Guðný Jóna 2 ára

Guðný Jóna 2 ára

Í dag 14. mars varð Guðný Jóna 2 ára og héldum við upp á afmælið hennar í dag hér í Krílakoti.

Guðný Jóna málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir

 sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Guðnýju Jónu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.