Grænt skyr

Grænt skyr

Í dag var grænn dagur hér á Krílakoti og í tilefni dagsins fengu börnin að gæða sér á grænu skyri og þau sem ekki máttu það borða fengu grænan graut. Þetta var að vonum mjög spennandi og var mikið borðað.

Vikan hjá okkur hefur gengið ljómandi vel þrátt fyrir talsverð veikindi bæði á börnum og fullorðnum. Bóla hlaupabóla er komin aftur í heimsókn til okkar og er á sinni annarri umferð þetta haustið.

Við hlökkum til komandi vikna, en í næstu viku munum við baka smákökur og vikuna þar á eftir verður jólaföndur með foreldrum, en það munum við auglýsa betur síðar.

Munið svo eftir að kíkja á upplýsingaspjöldin okkar í fataherbergjunum og nú er kominn uppfærður matseðill hér á síðuna