Fréttabréf, mánaðarskrár o.fl.

Nú eru mánaðarskrár og fréttabréf júlí mánaðar fyrir Hólakot og Skakkaland komin á heimasíðuna. Vegna veikinda þá verður þó smá bið á mánaðarskrá og fréttabréfi Skýjaborgar, en það verður sett á vefinn eins fljótt og hægt er.

Kunnáttu skólastjóra fer óðum fram og í þetta sinn er engin bið á matseðlinum, líkt og fyrir mánuði síðan :)

Í næstu viku (30. júní til 4. júlí) mun ég sækja námskeið Norrænu kennarasamtakanna sem haldið er í Christiansminde í Danmörku. Og verður þar fjallað um menntun og fagmennsku á breytingartímum. Ég mun vera við störf vikuna fyrir sumarleyfislokun.

      Bestu kveðjur, Dagbjört