Framkvæmdir við Krílakot

Framkvæmdir við Krílakot

Komið sæl

Ég vona að þið hafið það gott í sumarleyfinu ykkar þó svo veðrið hafi ekki verið uppá sitt besta, hitatölur mættu vera aðeins hærri og þessi gula mætti nú láta sjá sig við og við. En við Krílakot er mikið líf og fjör þó svo við séum í sumarleyfi því nú eru framkvæmdir hafnar og undirbúningur að viðbyggingunni. Leikfangaskúrinn hefur verið færður til og pallurinn sem foreldrar ásamt George smíðuðu á sínum tíma hefur nú verið tekinn niður en vonandi verður hann endurbyggður á nýjum stað á lóðinni þegar fram líða stundir. Hurðin hefur verið færð til og er nú gengið inn í Krílakot beint frá bílastæði meðan framkvæmdir standa yfir.

Hér eru nokkrar myndir frá framkvæmdunum:

Kveðja Drífa