Foreldrar barna á Krílakoti og Fagrahvammi

Við minnum ykkur á Vináttukeðjuna á morgun kl. 18, en þar munu börn sem eru á Krílakoti og Fagrahvammi flytja lagið Vinur minn. Það er mæting á Krílakoti kl. 17:30 (fyrir börn úr báðum skólum) en þar verður lagið æft nokkrum sinnum áður en gengið verður yfir í kirkjubrekku. Foreldrar þeirra barna sem hafa þegar útskrifast (sem fara í grunnskóla í haust) eru endilega hvattir til að koma með börn sín og leyfa þeim að taka þátt!
 
Vonandi sjá sér sem flestir færi á að mæta og taka þátt!

                                                                                    Skólastjórar