Enn meira um starfsfólk

Enn meira um starfsfólk

Eins og fram hefur komið er starfsfólk byrjað að fara í sumarfrí. Vegna þessa mun starfsfólk að einhverju leiti fara á milli deilda í sumar, en við reynum samt sem áður að halda eins miklum stöðugleika og hægt er.

Í næstu viku fer Maja (deildarstjóri á Skýjaborg) í 2ja vikna frí, Arna (deildarstjóri á Skakkalandi) verður í fríi 15.-18. júní, en kemur svo aftur. Fanney (á Skakkalandi) er í fríi í dag og aftur á mánudaginn og Bjarney fer í frí 18.-25. júní og kemur svo aftur. Steinunn (Skýjaborg) er, eins og fram hefur komið, í veikindafríi og mun ekki koma til starfa fyrr en eftir sumarlokun. Þura (Skakkaland) er einnig í veikindaleyfi, en við vonumst eftir að hún komist til starfa sem fyrst. Við munum svo setja inn frekari upplýsingar síðar.