Elva Marín 5 ára

Elva Marín 5 ára

Í dag varð Elva Marín 5 ára. Við héldum upp á daginn hennar með því að syngja fyrir hana afmælissönginn. Hún bjó sér til kórónu sem hún bar í dag, blés á kertin 5 og bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni. Svo flaggaði hún íslenska fánanum ásamt því að vera umsjónarmaður dagsins. Við óskum Elvu Marín og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.