Egill Bjarki 2 ára

Egill Bjarki 2 ára

 

Í dag héldum við uppá tveggja ára afmæli Egils Bjarka en hann á afmæli þann 16. júlí.  Flaggað var í tilefni dagsins og afmælissöngvarnir okkar sungnir fyrir Egil Bjarka, "Hann á afmæli í dag", "Hann hefur stækkað í nótt" og " Þetta er afmæliskveðja". Egill Bjarki bauð svo börnunum upp á epli og vínber úr afmælisávaxtakörfunni.  Óskum við Agli Bjarka og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum á Skýjaborg.