Dmitry 3 ára

Dmitry 3 ára

Í gær 14 desember héldum við upp á 3 ára afmælið hans Dmitry. Hann málaði á flottu kórónuna sína og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins með Sigurði Einari sem átti líka afmæli. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Dmitry og fjölskyldu hans til hamingju með daginn. Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.