Deildarstjóra vantar í leikskólann Krílakot á Dalvík

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildarstjóra í 100% framtíðarstarf. Vinnutími er 8:00-16:00.

Hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reynsla af starfi með börnum


Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Drífa Þórarinsdóttir í síma 466-1372. Umsóknum og ferilskrá ber að skila í Krílakot eða á netfangið krilakot@dalvik.is Móttaka umsókna verður staðfest. Umsóknarfrestur er til 20.júní 2012.


Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.


Krílakot er þriggja deilda leikskóli, nemendur skólans eru frá 9 mánaða aldri til 3 ára. Í starfinu er áhersla lögð á umhyggju
og fjölbreytt, skapandi starf og nám í gegnum leik. Krílakot er Grænfánskóli, leggur áherslu á læsi, tónlist og Uppeldi til ábyrgðar.

Kjörorð skólans eru SKÖPUN, GLEÐI, ÞOR