Deildarstjóra vantar á Krílakot

Deildarstjóra vantar á Krílakot

Hæfniskröfur:

Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
Jákvæðni og sveigjanleiki.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Reynsla af leikskólakennslu æskileg.

Athugið, umsóknarfrestur er til og með 23. desember 2010.

Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Dagbjört Ásgeirsdóttir í síma 466-1372/691-3769. Umsóknum og ferlskrá ber að skila á Krílakot eða á netfangið krilakot@dalvik.is. Móttaka umsókna verður staðfest. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Krílakot er þriggja deilda leikskóli, staðsettur á Dalvík, nemendur skólans eru frá 9 mánaða aldri til 3 ára. Í starfinu er áhersla lögð á umhyggju og fjölbreytt, skapandi starf og nám í gegnum leik.
Kjörorð skólans eru SKÖPUN, GLEÐI, ÞOR.