Bryndís Lalíta 3 ára í dag

Bryndís Lalíta 3 ára í dag

Í dag þann 13. október varð Bryndís Lalíta 3. ára og héldum við upp á afmælið hennar.

Bryndís Lalíta málaði sér kórónu og skreytti hana. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.

Við óskum Bryndísi og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.

Kveðja frá öllum á Skakkalandi.