Brúðuleikhús

Foreldrafélög allra leikskólanna í Dalvíkurbyggð ætla að bjóða öllum leikskólabörnum og foreldrum þeirra á brúðuleiksýninguna, Klókur ertu - Einar Áskell. Bernd Ogrodnik er mættur með nýja sýningu sem er um hinn bráðskemmtilega og uppátækjasama snáða, Einar Áskel.

Sýningin verður þriðjudag 29. apríl kl. 14:00 í Víkurröst. Sýningartími er 40 mínútur.

 Styrktaraðilar sýningarinnar eru:

Daltré ehf.

Katla ehf.

Kvistur sf.

Tréverk ehf.