Bolludagur

Bolludagur

Við héldum Bolludaginn hátíðlegan hér í Krílakoti og hesthúsuðum slatta af dásamlegu heimabökuðu bollunum sem matráðar okkar, þær Halldóra og Magga, bökuðu af sinni hjartans list. Sumum fannst þetta æði meðan önnur voru minna fyrir þessa árlegu hefð okkar og enn öðrum fannst þetta frekar subbulegt og hreinlega ekki borðandi. Kjötfarsbollurnar og kálið var síðan borðað í hádeginu og höfum við því fengið magafylli af bollum í dag. Hér eru nokkrar myndir til augnayndis:

Eigið góðan bolludag

Kveðja frá öllum í Krílakoti.