Birna Karen 4 ára

Birna Karen 4 ára

Þann 30. júlí varð Birna Karen 4 ára.  Þar sem hún átti afmæli í sumarfríinu sínu þá héldum við upp á afmælið hennar í dag.  Hún byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu, fór út og flaggaði, bauð öllum upp á ávexti og svo sungu allir í tilefni dagsins.  Einnig var hún þjónn dagsins.  Við óskum henni til hamingju með afmælið frá öllum á Hólakoti.