Barri 2. ára

Barri 2. ára

Í dag héldum við uppá 2. ára afmælið hans Barra.  Barri málaði á kónónuna sína og svo var flaggað í tilefni dagsins.  Í ávaxtastund sungu allir fyrir Barra afmælissönginn, "Hann hefur stækkað í nótt" og "Þetta er afmæliskveðja". Eftir sönginn bauð Barri börnunum upp á ávexti úr afmæliskörfunni, vínber og banana.  Við óskum Barra og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skýjaborg.