Baldvin Ari 2. ára

Baldvin Ari 2. ára

Baldvin Ari varð 2 ára þann 29. júlí en vegna sumarlokunar var ekki hægt að halda upp á það á afmælisdeginum hans. Við héldum upp á daginn hans föstudaginn 27. ágúst. 

Í tilefni dagsins bjó hann til kórónu, flaggaði íslenska fánanum, við sungum fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kerti. Í ávaxtastund bauð hann öllum á Skakkalandi upp á ávexti. 

Við óskum Baldvini Ara og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.