Auður Embla 5 ára

Auður Embla 5 ára

Auður Embla verður 5 ára þnn 14. nóvember. En þar sem hún verður fjarverandi á sjálfan afmælisdaginn héldum við upp á afmælið hennar í leikskólanum í dag. Hún var búin að búa sér til kórónu sem hún bar og bauð svo upp á ávexti í ávaxtastundinni, blés á kertin 5, börnin sungu fyrir hana afmælissönginn og svo flaggaði hún íslenska fánanum. Hún fékk einnig að vera umsjónarmaður dagsins. Við óskum Auði Emblu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.